Meissner og Maharishi

Maharishi Mahesh Yogi

Maharishi Mahesh Yogi

<háð>

Stofnun háskólans Maharishi University of Management í Iowa í Bandaríkjunum er eitt margra góðverka sem Maharishi Mahesh Yogi hefur unnið mannkyninu til heilla og heilsubótar.

Lýsingar námskeiða í stærðfræðideild þessa skóla gefa fyrirheit um spennandi nýjungar í túlkun stærðfræðinnar. Hér eru nokkur dæmi:

  • Infinity: From the Empty Set to the Boundless Universe of All Sets — Exploring the Full Range of Mathematics and Seeing its Source in Your Self
  • Maharishi Vedic Mathematics: Mathematical Structure and the Transcendental Source of Natural Law
  • Calculus 1: Derivatives as the Mathematics of Transcending, Used to Handle Changing Quantities
  • Calculus 2: Integrals as the Mathematics of Unification, Used to Handle Wholeness
  • Calculus 3: Unified Management of Change in All Possible Directions
  • Calculus 4: Locating Silence within Dynamism

Þessi jákvæði jógi hrinti af stað byltingu í varnarmálum nú í febrúar með vef sínum „Invincible Defence“. Þar lýsir hann hvernig útrýma megi hryðjuverkum fyrir fullt og allt, meðal annars með stóraukinni ástundun jógaflugs. Þetta er auðskýrt: jógaflugmenn eru í ofurleiðslu sem framkallar Maharishi-hrifin, á svipaðan hátt og ofurleiðni framkallar Meissner-hrifin. Rétt eins og ofurleiðandi efni býr yfir „invincible defence“ gegn segulsviði reisa ofurleiðslujógar órjúfanlegan varnarmúr þjóðar gegn hryðjuverkavá.

Vonandi meðtaka allir sannindi jógans með opnum huga, ótruflaðir af hinum alræmdu fordómum vísindanna.

</háð>

3 Responses to “Meissner og Maharishi”

  1. GJB Says:

    Ætli háskóli jógans sé í samstarfi við Háskólann í Toronto?

    Þar fara fram merkar rannsóknir á skammtafræðilegri femínískri minnistækni.

  2. GJB Says:

    Dawkins skrifar af sínum yfirlætislega vindbelging um sérfræðinginn í skammtafræðilegri femínískri minnistækni.

  3. GÞB Says:

    Jahérna. Ég setti þetta líka á enska bloggið mitt, en einhver krossfari gegn TM-hreyfingunni (transcendental meditation) hans Maharishis vísaði á mig og taldi mig „tala með velþóknun“ um Maharishi-stærðfræði!

    Þótt það sé skemmtilegt að sjá svona vitleysu er vert að muna að raunverulegt fólk sogast inn í svona költ fyrir alvöru, oft að ósekju (t.d. ung börn). Það er ekkert grín.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.