Archive for April, 2007

Óskírð börn ekki lengur í forgarði vítis

Friday, April 27th, 2007

Í frétt á mbl.is:

Alþjóðlega guðfræðinefnd Páfagarðs hefur sent frá sér skjal, sem ber yfirskriftina „Von um frelsun ungabarna sem deyja óskírð”. Þar kemur fram að eftir áratuga rannsóknir sé ljóst að óskírð börn, sem deyja, lendi ekki í forgarði vítis eins og til þessa hefur verið haldið fram.

Það er væntanlega flestum ljóst að þetta „rannsóknastarf“ sé kjánalegt. Samt þykir einhvern veginn ljótt að segja það upphátt. Hinir eldri sussa og segja „maður segir ekki svona.“

Kannski þykir sú hreinskilni ljót af sömu ástæðum og það þykir ljótt að sparka í liggjandi mann. En kaþólska kirkjan er með allra ríkustu og valdamestu liggjandi mönnum, og hefur feiknalega stjórn á hugum hundruða milljóna manna. Ég er bara mátulega vel stæður og það er rétt svo að ég stjórni mínum eigin huga. Ég held það sé óþarft að verja kaþólsku kirkjuna fyrir mér.

Þegar ég er skammaður fyrir að sparka í þennan liggjandi mann er það svolítið eins og mús sé skömmuð fyrir að sparka í tána á dauðvona risaeðlu.

Það er athyglisvert að orðalagið „áratuga rannsóknir“ sé notað. Er þetta tilraun kirkjunnar til að hljóma trúverðug, að láta eins og hún leiti sannleikans á eins agaðan og gagnrýnan hátt og vísindamenn?

Ætli „rannsóknir“ kaþólsku kirkjunnar leiði einhvern tímann í ljós t.d. að getnaðarvarnir séu raunar ekki syndsamlegar, eða samkynhneigð ekki viðurstyggð? Það er kannski bjartsýni, en hún uppgötvaði jú fyrir fimmtán árum að hún hefði nú kannski komið svolítið illa fram við Galíleó … 350 árum eftir að hann dó í stofufangelsi fyrir örgustu vísindaiðkun. Kirkjunni er ekki alls varnað.

Tónlystauki

Friday, April 27th, 2007

Tónlist er lykilatriði í því að gera vörur lokkandi. Þetta gleymist gjarnan þegar um hugbúnað er að ræða.

Kynningar á hinni prýðilegu (og gjaldfrjálsu) CustomizeGoogle-viðbót við Firefox eru ekki því marki brenndar. Hér er almenn kynning og hér kynning á nýrri virkni.

Ég fræddist ekki verulega af þessum myndskeiðum. En ég held ég verði glaður í hjartanu í allan dag.

„She was a fool, and so am I…“

Wednesday, April 25th, 2007

„She was a fool, and so am I, and so is anyone who thinks he sees what God is doing.“

15 Things Kurt Vonnegut Said Better Than Anyone Else Ever Has Or Will

Jæja, nú dríf ég loksins í að lesa Vonnegut. Hef dregið þetta nógu lengi.

51% hvorugkyns

Tuesday, April 24th, 2007

Úr Fréttablaðinu í dag:

Þrjátíu prósent þeirra sem leituðu liðsinnis spæjara voru konur, en 19 prósent karlmenn.

Helmingur viðskiptavina einkaspæjara er þá hvorki né. Það var og.

„Gætir kosið mig.“

Tuesday, April 24th, 2007
Sprækir ungliðar

Á sigurlistanum.is er gagnmerkt myndskeið þar sem ungir frambjóðendur eru töffaðir upp með því að sýna þá spila ballskák í takt við æsilega kvikmyndatónlist.

Myndmálinu væri betur sleppt. Á heilli mínútu er aðeins tvisvar skotið. Í hvorugt skiptið fer kúla niður. Ekkert gengur upp. Mínútuna nota frambjóðendurnir að mestu í að tala af andagift:

„Ertu að velta fyrir þér hvað þú eigir að kjósa? Gætir kosið mig.“

„Þetta er Róbert Marshall. Sprækur strákur.“

Þetta er auðvitað afskaplega töff.

Bætt við síðar sama dag: Myndskeiðið skemmtilega hefur því miður verið fjarlægt og bara eldri tvö myndskeiðin þeirra eru eftir. Ég er greinilega orðinn áhrifavaldur í ungliðastarfi Samfylkingarinnar.

Ekkert liggur nú á

Sunday, April 22nd, 2007

Vefbúð/vöruskrá ÁTVR liggur niðri vegna uppfærslu á tölvukerfi okkar. Uppfærslunni lýkur í byrjun júní.

vinbud.is

Seiseijá, það er nú lágmark að loka í einn og hálfan mánuð. Má ekki minna vera.

Hroki trúleysingjanna

Wednesday, April 18th, 2007

Í grein í Fréttablaðinu í gær sýnir Steindór Erlingsson af sér hinn dæmigerða hroka trúleysingjans, þar sem hann heldur því blákalt fram að trúlaust fólk sé jafngott og annað fólk — jafnvel óvenjugott! „Trúleysingjar eru góðir nágrannar,“ segir hann í fyrirsögn.

Þá bábilju er auðvelt að hrekja, lið fyrir lið.

Steindór segir einhverja ótilgreinda spekinga hafa „ítrekað sýnt fram á fáránleika þess viðhorfs“ að trúleysi geti af sér siðblindu. Án nokkurra raka eða tilvísana dæmir hann viðhorfið „fáránlegt,“ eins og ekkert sé sjálfsagðara en að guðlaust fólk hafi siðferðiskennd. Sagan segir annað.

Lítum til dæmis á Sovétríkin sálugu og Kína og Þýskaland nasismans, þar sem trúnni var úthýst. Voru þetta góðir nágrannar? Hörmungar þessara ríkja stöfuðu vitaskuld ekki af útbreiddri örbirgð og valdtöku firrtra einræðisherra; þessir þættir voru aukaatriði við hliðina á afnámi messuhalds og kristinnar sálgæslu. Þetta sér hver maður sem rétt vill sjá.

Steindór líkir viðhorfinu í garð trúleysingja við „fordóma.“ En það sem byggir á traustum rökum og reynslu köllum við ekki fordóma. Sagan geymir mýmörg vel skjalfest dæmi um siðblindu og brjálsemi hinna guðlausu. Hverjir voru það sem pyntuðu fólk og brenndu á báli fyrir skoðanaágreining, fyrir nokkrum öldum? Myndu kristnir menn gera slíkt? Auðvitað ekki, en Rannsóknarréttur hinna trúlausu vílaði ekki þau vinnubrögð fyrir sér á meðan hann hafði völd til. Til allrar hamingju ruddu loks kristin gildi sér til rúms með upplýsingunni og bundu enda á hroðaverk trúvillinganna.

Næst tínir Steindór til skoðanakönnun sem sýnir eindregna andstöðu venjulegs fólks við trúleysingja — og lætur eins og hún mæli með trúleysi! Þetta er fásinna; könnunin sýnir berlega lýðræðislegan dóm yfir heiðingjunum — eða heldur Steindór kannski að þessi andúð sé sprottin upp úr engu? Nei, þessi dómur múgsins er óhrekjandi röksemd fyrir löstum trúleysingja, rétt eins og 80+% aðild Íslendinga að þjóðkirkjunni sannar á skotheldan hátt yfirburði þeirrar ágætu stofnunar.

Fleira er tínt til, svo sem lofræða einhvers „prófessors“ um trúleysingja. En er ekki alltaf hægt að finna einhvern hlutdrægan „fræðimann“ með klofna tungu sem talar í kross við veruleikann? Við látum ekki Steindór eða aðra gylla hinn andlega hafís guðleysisins fyrir okkur með sinni ísköldu og vonarsnauðu vísindaþoku.

Tökum af öll tvímæli. Trú er siður; trúleysi er siðleysi. Afneitun þess veruleika er bara fyrirsláttur þeirra sem í skásta falli vita ekki betur, en í versta falli ganga erinda hins illa.

Trúleysingjar eru ekki bara vondir nágrannar. Þeir eru vont fólk.

Örhugsun um sið og lög

Friday, April 13th, 2007

Sumum finnst að gjörð eigi að teljast siðferðislega röng af því að hún sé ólögleg.

Það er einmitt öfugt.

Hvítliðarnir koma!

Friday, April 13th, 2007

Víggirðing í kringum Alþingishúsið

Veit einhver hvers vegna nú rís þriggja metra gaddavírsgirðing í kringum Alþingi? Er þetta eitthvert langdregið aprílgabb? Er þingmeirihlutinn að grípa til örþrifaráða?

Ég verð að fara að taka almennilega myndavél með í vinnuna. Það gengur ekki að skúbba alltaf um Alþingi með gsm-símanum.

The Awful Doctor Orlof

Wednesday, April 11th, 2007
Gritos en la noche plakat

Orlof læknir að störfum.

Kvikmyndin Gritos en la noche (á ensku The Awful Doctor Orlof) fjallar um framtakssama fjölskyldumanninn Orlof lækni. Orlof rænir fögrum konum til að flá þær og græða skinnið á skaðbrennda dóttur sína. Eins konar Hrói höttur hinna húðljótu.

Þessi pistill fjallar annars ekki um lækninn hjálpsama heldur um þann hornstein lögvarinna atvinnuréttinda okkar, orlofsréttinn.

Þeir sem vilja að vinna og bingó og önnur mannleg upplyfting sé bönnuð þennan eða hinn daginn bera því gjarnan við að annars „missum“ við þessa lögvörðu frídaga. Það vill auðvitað enginn.

Væri nokkur ofrausn að gefa okkur lausan tauminn til að verja þessum dögum að vild — með velþóknun valdstjórnarinnar — en fjölga að sama skapi lögbundnum orlofsdögum á ári? Þeir sem vildu frí á föstudaginn langa tækju sér það þá bara.

Sumir vilja reyndar ekki bara fá sjálfir frí á þessum degi, heldur tryggja frið sinn og ró með því að skikka aðra í frí samtímis. Koma mætti til móts við þá sanngjörnu kröfu með aukinni alþýðufræðslu um off-takkann á gemsanum (það er einmitt þjóðþrifamál hvort sem er).

Auknu orlofinu er síðan tilvalið að verja á hlýjum, rólegum stöðum, til dæmis á eynni Hýdru í Saronikos-flóa. Hýdra er kjörin fyrir afturhaldsmenn: þar eru engin farartæki á hjólum — og allt krökkt af ösnum. Óhætt er að mæla með gistingu á hinu krúttlega gistiheimili eyjarinnar … Orloff Hotel.


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.