Kysst á vöndinn

Fasces

Kennslukönnun fer fram í lok hvers misseris í Háskóla Íslands. Í henni meta nemendur frammistöðu kennara og högun námskeiða.

Niðurstöðurnar eru sýndar kennara og skorarformanni — en ekki nemendum. Þeir sjá enga samantekt, enga greiningu; könnunin hverfur út í tómið frá þeirra sjónarhóli. Fyrir vinnuna við gæðaeftirlit HÍ uppskera þeir ekkert nema þátttöku í happdrætti þar sem verðlaunin eru … aukinn prentkvóti. Í fyllstu alvöru.

Framfarir mannkyns fær hins vegar ekkert stöðvað: formenn nemendafélaganna í verkfræðideild hafa nú fengið að sjá niðurstöður kennslukönnunar í fyrsta sinn. Stjórn VIR, félags rafmagnsverkfræðinema, brást óðara við og heiðraði í dag þá tvo kennara sem komu best út í fyrravor og fyrrahaust.

Blásnauðir nemendurnir splæstu viðurkenningarskjali, blómvendi og dýrindis rauðvínsflösku á Önnu Soffíu Hauksdóttur prófessor … og stundakennara nokkurn, sem þó er alræmdur fyrir miskunnarlaust verkefnaálag.

Blómin eru fögur, flaskan fríð, og kæti mín greinilega hæverskunni yfirsterkari. :-)

2 Responses to “Kysst á vöndinn”

  1. hjalti Says:

    Til hamingju! Held að verkefnaálag sé orsök, og viðurkenningin afleiðing… meira álag!

  2. GJB Says:

    Hann stendur sig. Til hamingju bro!

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 44 access attempts in the last 7 days.