Grafalvarlegt

Hlutfall koltvísýrings í andrúmsloftinu eykst víst vegna almenns sóðaskapar mannanna. Treglega hefur gengið að koma heiminum í skilning um hve alvarlegt þetta er, en þeir sem til þekkja leggja æ harðar að sér við vitundarvakninguna.

Eyþór Arnalds birti graf á bloggi sínu, fengið af Wikipedia. Þar sést hvernig mælt hlutfall koldíoxíðs hefur aukist síðustu 250 árin og virðist aukningin sláandi. Væri grafið hins vegar teiknað með lóðrétta ásinn „heilan“ (þannig að hann næði frá núlli) myndi aukningin virðast miklu minna sláandi, eins og sést hér fyrir neðan.

Carbon history relative vs absolute

Gröf eru oft stélstýfð gagngert til þess að blekkja, að plata án þess að segja ósatt. Hér virðist mér stýfingin hins vegar réttlætanleg. Koltvísýringur verkar víst þannig í andrúmsloftinu að ekki þarf stóra hlutfallslega breytingu til að allt fari í kaldakol — en fæst erum við þaulkunnug þeim vísindum. Sá sem ekki þekkir vel til þáttar kolefnis í loftslagsbreytingum getur vel túlkað grafið á þann veg að „þetta sé nú ekki svo mikil breyting.“ Sé það mistúlkun er sanngjarnt að vega hana upp með því að klippa neðan af grafinu. Þannig miðlar það betur þeim sannleik sem vísindamenn telja vera að baki.

Tölulegar niðurstöður og gröf hafa enga merkingu nema í samhengi við vísindin sem skilgreina túlkun þeirra. Framsetning þessa grafs virðist í samræmi við vísindalega merkingu þess.

Grafið væri síðan mun meira sláandi ef það kæmi líka til skila þessari staðhæfingu:

Breytileiki koldíoxíðs í andrúmsloftinu yfir langan tíma

Eins og sést hér til hægri eru hinar litlu breytingar frá 1750 til 1850 innan marka náttúrulegs breytileika, en koldíoxíðsöfnunin síðan þá fer langt fram úr nokkru sem sést hefur síðustu 400,000 árin og gæti verið einsdæmi síðustu tugi milljóna ára.

— þýtt úr Wikipedia-síðunni um þetta graf

Ef þetta er satt hlýtur að mega klippa undan einu eða tveimur gröfum til að vekja máls á því.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 43 access attempts in the last 7 days.