Archive for March, 2007

Kysst á vöndinn

Friday, March 30th, 2007
Fasces

Kennslukönnun fer fram í lok hvers misseris í Háskóla Íslands. Í henni meta nemendur frammistöðu kennara og högun námskeiða.

Niðurstöðurnar eru sýndar kennara og skorarformanni — en ekki nemendum. Þeir sjá enga samantekt, enga greiningu; könnunin hverfur út í tómið frá þeirra sjónarhóli. Fyrir vinnuna við gæðaeftirlit HÍ uppskera þeir ekkert nema þátttöku í happdrætti þar sem verðlaunin eru … aukinn prentkvóti. Í fyllstu alvöru.

Framfarir mannkyns fær hins vegar ekkert stöðvað: formenn nemendafélaganna í verkfræðideild hafa nú fengið að sjá niðurstöður kennslukönnunar í fyrsta sinn. Stjórn VIR, félags rafmagnsverkfræðinema, brást óðara við og heiðraði í dag þá tvo kennara sem komu best út í fyrravor og fyrrahaust.

Blásnauðir nemendurnir splæstu viðurkenningarskjali, blómvendi og dýrindis rauðvínsflösku á Önnu Soffíu Hauksdóttur prófessor … og stundakennara nokkurn, sem þó er alræmdur fyrir miskunnarlaust verkefnaálag.

Blómin eru fögur, flaskan fríð, og kæti mín greinilega hæverskunni yfirsterkari. :-)

„Ég hélt því hvergi fram að þú hefðir sagt það. Gætirðu bent mér á hvar því er haldið fram?“

Thursday, March 22nd, 2007

Keisarinn er hvergi eins misskeggjaður og í umræðu um umræðu um trú.

Möl er böl

Tuesday, March 20th, 2007
Rapunzel Früchte Müsli

Það var nær ófyrirgefanlegt af Rapunzel að setja stein í Früchte müsliið mitt.

Þetta er ljósleitt og grófkornótt djúpberg, gæti vel verið granít.

Til eru harðari efni; tannglerungur er ekki eitt þeirra.

Fátt er svo með öllu illt: eftir þrjá áratugi skal ég loks hlýða og tyggja hægar.

Push the button

Tuesday, March 20th, 2007
Söngvari Tipex í svimandi sveiflu

Söngvari Tipex í svimandi sveiflu.

Fríkí nikkarinn með pípuna

Fríkí nikkarinn með pípuna

Ég er hættur að kvarta undan því að Evróvisjón-lög séu útvatnaðar væmnar sykurklisjur. Fyrst Finnarnir í fyrra og nú — fyrir þá lesendur sem hafast við undir steini eins og ég — ísraelska lagið í ár (takk, Eyþór).

Hér á eftir fer textinn, eftir því sem ég kemst næst, með enskri þýðingu á hebreska rappinu (bútað saman héðan og þaðan með aðstoð orðabókar).

Jahérna.

כפתור אדום Push the Button
מילים, לחן והפקה מוסיקלית: קובי אוז Lyrics and music: Kobi Oz

The world is full of terror
If someone makes an error
He’s gonna blow us up to biddy biddy kingdom come
There are some crazy rulers
they hide and try to fool us
With demonic, technologic willingness to harm

They’re gonna push the button
push the button
push the bu-
push the bu-
push the button

Il ya plein de souffrance
Dans les rues il y a trop de violence
Et on a beaucoup de chance d’être vivant même pas blessés.
Avancement tactique de régime fanatique
Situation tragique qui me met les larmes aux yeux

And I don’t want to die
I want to see the flowers bloom
Don’t want to go kaputt kaboom
And I don’t want to cry
I wanna have a lot of fun
Just sitting in the sun

But nevertheless …

He’s gonna push the button
push the button
push the bu-
push the bu-
push the button

מסרים מתפוצצים עלי
טילים מתעופפים וגם נופלים עלי
שוטרים וגנבים מתרוצצים עלי
הם קופצים עלי מתקרצצים עלי
אללי אללי תענה לי אלוהי הי
Messages are blowing up on me,
Missiles are flying and falling on me,
Cops and robbers running around on me,
And they’re jumping on me, bothering me.
My god, my god, answer me god?
הסיוט הזה ארוך מדי
כשאני בקושי חי וכולם מכוונים אלי
זה מוקדם לשיר אולי
שנתתי לך חיי
ווי ווי - המשטרה
וויאוו וויאוו - צוות הצלה
This nightmare is too long,
When I am barely alive and everybody is aiming at me
it might be too soon to sing
“I Gave My Life for Thee”
Why, why - police patrol
Wow, wow - paramedical
הנה זה בקדם שיר ללא סלאם
אדום זה לא רק צבע זה יותר כמו דם
שוב עוצר בלב את הנשימה
שלא תפרח עכשיו הנשמה
Here it is in the Kdam (í forkeppninni), a song without Salam (án friðar).
Red is not just a color, it’s more like blood,
Stopping my breath again,
So my soul won’t pop out.
הנה מלחמה הנה הנשמה
בום בום זה מה שקורה עכשיו
בין רקטה למצ’טה בין צופה לכתב
בין מחטף לנחטף בין גשום לשרב
Here is war, here is the soul [or: here is war, here is CPR]
Boom boom this is what is happening now,
Between rocket and machete, between viewer and reporter,
Between underhanded opportunism and kidnapping,
הסלמה במדרגות עולה ותופסת קו
כלום כלום זה מה שכולם עושים
קיצונים מקצינים וקצינים מרצינים
התמימים מתמתנים ממתינים לנתונים
ועונים: שכולם חסרי אונים
Escalation rises up the stairs and takes a (front) line.
Nothing is what everybody does.
Extremists getting more extreme and officers acting serious,
The naive turn to moderation and wait for information
And answer that everyone is helpless.
עולם כולו דמונים שאנחנו סתם פיונים
ושמפיונים עם ז’יטונים מחליטים מה שיהיה
ניהול בעצלתיים, אוניה מלאה במים
וכולם שותים לחיים וטובעים זה לצד זה
A world full of demons, and we are only pawns,
And champions with poker chips decide what will be.
Things are run slowly, a ship full of water,
And everybody is drinking l’chaim, drowning next to each other.
אולי זה חד מדי צריך לשיר שירי דקלים
שירי מדבר ללא דגלים
אני עוד חי חי חי ואם ימשיך להיות מפחיד
רק אז אני אגיד:
Maybe this is too blunt, maybe we should sing about palm trees,
Sing about a desert without flags.
I’m still alive alive alive, and if it continues to be frightening,
Only then will I say:

I’m gonna push the button
push the button
push the bu-
push the bu-
push the button

Hvað varð um húbba húlle húlle húlle?

Grafalvarlegt

Saturday, March 10th, 2007

Hlutfall koltvísýrings í andrúmsloftinu eykst víst vegna almenns sóðaskapar mannanna. Treglega hefur gengið að koma heiminum í skilning um hve alvarlegt þetta er, en þeir sem til þekkja leggja æ harðar að sér við vitundarvakninguna.

Eyþór Arnalds birti graf á bloggi sínu, fengið af Wikipedia. Þar sést hvernig mælt hlutfall koldíoxíðs hefur aukist síðustu 250 árin og virðist aukningin sláandi. Væri grafið hins vegar teiknað með lóðrétta ásinn „heilan“ (þannig að hann næði frá núlli) myndi aukningin virðast miklu minna sláandi, eins og sést hér fyrir neðan.

Carbon history relative vs absolute

Gröf eru oft stélstýfð gagngert til þess að blekkja, að plata án þess að segja ósatt. Hér virðist mér stýfingin hins vegar réttlætanleg. Koltvísýringur verkar víst þannig í andrúmsloftinu að ekki þarf stóra hlutfallslega breytingu til að allt fari í kaldakol — en fæst erum við þaulkunnug þeim vísindum. Sá sem ekki þekkir vel til þáttar kolefnis í loftslagsbreytingum getur vel túlkað grafið á þann veg að „þetta sé nú ekki svo mikil breyting.“ Sé það mistúlkun er sanngjarnt að vega hana upp með því að klippa neðan af grafinu. Þannig miðlar það betur þeim sannleik sem vísindamenn telja vera að baki.

Tölulegar niðurstöður og gröf hafa enga merkingu nema í samhengi við vísindin sem skilgreina túlkun þeirra. Framsetning þessa grafs virðist í samræmi við vísindalega merkingu þess.

Grafið væri síðan mun meira sláandi ef það kæmi líka til skila þessari staðhæfingu:

Breytileiki koldíoxíðs í andrúmsloftinu yfir langan tíma

Eins og sést hér til hægri eru hinar litlu breytingar frá 1750 til 1850 innan marka náttúrulegs breytileika, en koldíoxíðsöfnunin síðan þá fer langt fram úr nokkru sem sést hefur síðustu 400,000 árin og gæti verið einsdæmi síðustu tugi milljóna ára.

— þýtt úr Wikipedia-síðunni um þetta graf

Ef þetta er satt hlýtur að mega klippa undan einu eða tveimur gröfum til að vekja máls á því.

Um Evróvision og islam og teygjuæfingar

Tuesday, March 6th, 2007

Í verkefninu „Vision For Europe“ er leitast við að skilgreina sameiginleg gildi Evrópubúa og draga þau saman í eitt skjal, Brüsselyfirlýsinguna.

Í þessari yfirlýsingu er einmitt trúfrelsið áréttað með skýrum fyrirvara: „the beliefs of any group may not be used to limit the rights of others.“ Um tjáningarfrelsið er vísað í Mannréttindasáttmálann og sérstaklega tekið fram: „It makes no exception on the grounds of religion.“ Í öndvegi er sjálfræði einstaklingsins; mannréttindi eru réttindi einstaklinga, ekki hópa.

Í sama anda er varla hægt að krefja múslima um að „líta ekki niður á“ konur sem kjósa að bera ekki blæju, eins og lagt er til í leiðara Morgunblaðsins í gær. Það er hált í þeirri hlíð: kristnir líta margir niður á þá sem kasta trúnni, eldra fólk fussar yfir rokktónlist, og svo framvegis. Á meðan enginn gengur á frelsi og réttindi annars er ekki hægt að amast við skoðunum sem tjáðar eru með friðsamlegum hætti, þótt þær þyki forpokaðar. Fulltrúar gamalla siða hljóta að fá að fussa í friði. Þeir mega bara ekki þröngva viðhorfum sínum upp á neinn með valdi, og geta ekki ætlast til að þeim verði ekki andmælt. Það er það frjálslyndi sem samfélagið má krefja múslima um, jafnt sem alla aðra.

Annars er torséð hvernig Straw hefur fengið það út að trúarbrögð og menningarheimar þróist aðallega í einum spretti, sem islam eigi eftir en kristnin hafi afgreitt, eins og hún sitji nú móð handan endalínunnar og geri teygjuæfingar, komin í mark, fullkomnun náð. Það er öllum hollt að rengja eigin sjálfsánægju. Á meðan heilög ritning fjallar enn um þrælahald, barnadráp og hommahatur eins og sjálfsagðan hlut er nokkur spölur eftir óhlaupinn, ekki síður í kristni en islam.


Bad Behavior has blocked 67 access attempts in the last 7 days.