Archive for February, 2007

Metakosningar

Saturday, February 3rd, 2007

Lýðræðisást Samfylkingarinnar í Hafnarfirði ríður ekki við einteyming.

Alþjóð veit að þar verður efnt til íbúakosninga um hvort álverið má stækka. Einhverjir hafa hnýtt í bæjarstjórnina fyrir að „þora ekki“ að ákveða þetta sjálf; íbúar kunna þó eflaust að meta að vera spurðir leyfis.

Í dag er síðan bráðskemmtileg frétt í Morgunblaðinu: „Hafa orðað spurningu um álverið.“ Þar kemur fram að:

  • bæjarstjórnin hefur selt út til Capacent það verk að orða spurninguna í kosningunni,
  • tillaga Capacent um fyrstu drög að spurningu er birt í fréttinni,
  • og senda má athugasemdir um orðalag spurningarinnar á netfangið hafnarfjordur@hafnarfjordur.is

Þetta er afar lýðræðisleg leið til að ákveða hvernig eigi að halda lýðræðislegar kosningar um málið.

Ætli hún hafi verið ákveðin lýðræðislega? Var kosið um hvort kjósa skyldi um hvernig kjósa skyldi um álverið?

Meginþorri

Saturday, February 3rd, 2007
Meginþorri íslensku þjóðarinnar er haldinn núna-hneigð á háu stigi.
… eru með miklu hærri eða lægri laun en meginþorri hópsins.
Vafalaust er yður sú staðreynd kunn, að meginþorri ágætismanna heimsins er hvorki upprunninn úr stétt öreiga né auðkýfinga.
Ingibjörg Sólrún fullyrti annars vegar að meginþorri Íslendinga hefði sömu lífssýn og Samfylkingin en hefði ekki treyst þingflokknum…
Meginþorri þjóðarinnar vill stöðva frekari álversframkvæmdir, stórvirkjanir og umhverfisspjöll…
… og ítreka það, sem ég hef áður sagt, að meginþorri þeirra er síður en svo ofhaldinn…

Er semsagt til einhver aukaþorri?

Enn skemmtilegra: „allur meginþorri vísindamanna.“ Ekki bara meirihlutinn af meginþorranum. Hann allur!

Örsnögg hugmynd sem ég nenni ekki að hugsa lengra

Friday, February 2nd, 2007

Þegar niðurstaða þín er það fyrsta sem þér datt í hug,
þá ertu annaðhvort mjög fljótur eða mjög latur að hugsa.


Bad Behavior has blocked 44 access attempts in the last 7 days.