Ertu vel að þér í móðurmálinu?
Ertu viss?
Þeir sem hafa óþarflega mikla trú á eigin málþekkingu (eins og ég) ættu endilega að taka prófið „Hversu vel kanntu íslensku?“ á vef Edduforlagsins, og sjá til hvort ekki sljákkar nokkuð í kokhreystinni.
Spurningarnar eru 20 að tölu, hver með þrjá valmöguleika; ef prófið væri lagt fyrir simpansa fengju þeir 6,7 stig að meðaltali.
Ég fékk 5.
Á vefnum eru fleiri próf í þessum anda, misskemmtileg, en öll a.m.k. betri notkun á tímanum en að renna yfir nýjustu fréttir af umferðarglæpum og frægu fólki á kennderíi.

February 17th, 2007 at 3:10 pm
Ég tók prófið. Ég er á við meðalsimpansa.
Meira en þú getur sagt. :-)
February 17th, 2007 at 8:03 pm
greinilega lang best að nota simpansaleiðina, ég tók prófið á 20 sekúndum… las ekki spurningarnar: 7 stig.
February 18th, 2007 at 2:21 am
Þekkti 1 orð og giskaði rétt á önnur 5.
Þetta er ástæðan fyrir því að ég eyddi tíma í að finna mér eldri útgáfu af Íslenskri Orðabók. Bara af því að einhver dalamaðurinn hafi rekið við í kirkju og kallað það messuvind þá þýðir það ekki að það eigi heima í orðabók.
February 18th, 2007 at 1:25 pm
Sama hér, ég þekkti fúþark og giskaði rétt á fjögur orð af hinum nítján. Ekki er 4/19 beysin frammistaða í útíbláinn giski með 1/3 líkum — skríður þó líklega inn fyrir fyrsta staðalfrávik.
Orðið „messuvindur“ gæti reyndar náð yfir fleira sem er látið um eyrun þjóta í kirkjum. Látum þó vera að fara út í þann sálmasöng; ég raula meira en nóg í moll á þessum vef.