Þjónustuver í lagi

Ég þurfti áðan að hringja í þjónustuver EJS vegna bilunar í tölvu.

Ég hlakkaði lítið til. Við vitum nú öll hvernig þjónustuver tölvufyrirtækja eru, er það ekki?

Greinilega ekki. Sú sem svaraði (hvað sem hún nú heitir) var kurteis og hjálpfús, skildi allt strax og vissi mætavel hvað hún var að tala um, útskýrði nokkra kosti í stöðunni, og við fengum skjótt niðurstöðu í málið — niðurstöðu sem fól ekki í sér að ég keypti neitt af EJS. Tölvan var ekki í ábyrgð og ekki keypt hjá EJS, og um það var heldur ekki spurt.

Ég vissi eiginlega ekki hvaðan á mig stóð veðrið.

Ókunnur starfsmaður þjónustuvers EJS fær hér með hrós fyrir framkomu og frammistöðu sem mætti gjarnan vera algengari í þessum bransa!

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.