Léttvægir gullmolar

Þrír gullmolar fengust úr Trivial Pursuit í kvöld:

Hvaða tæki fann Alexander Bain upp árið 1843, sem tengist uppgötvun nafna hans á símanum?

Hér stóð svarið faxtæki! Þetta þóttu okkur fyndin mistök, að rugla saman faxtæki og símskeytatæki — því að vitanlega var faxtækið ekki fundið upp fyrir miðja 19. öld, löngu á undan myndlesurum og alvöru fjarskiptatækni. Við létum því svarið símskeytatæki heita rétt, og kímdum svolítið yfir þessum klaufalega ruglingi hjá þeim sem sömdu eða þýddu Trivial Pursuit spurningasettið.

En það var nú samt faxtæki. Hí á okkur. Jahérna!

Hvað var fjarlægt úr tölvu í fyrsta skipti árið 1945 af tölvufræðingnum Grace Hopper?

Hér var giskað á vírus, en þeirri óværu kynntist tölvuheimurinn raunar ekki fyrr en 1982, þegar grunnskólaneminn Rich Skrenta gerði vinum sínum „skráveifu“ með veirunni Elk Cloner sem var annars meinleysisgrey. Skrenta þessi fann beinu brautina aftur; hann bloggar nú á skrenta.com, en frumkvöðulsstarf hans hefði mátt missa sín því að arftakar hans í faginu hafa gengið öllu lengra í því að angra fólk.

Hið rétta var hins vegar að Grace Hopper fann mölflugu sem hafði valdið bilun í tölvu. Orðið „bug“ var þá þegar notað yfir villur í tölvum, svo að þetta atvik þótti fyndið um leið … en Grace átti öllu veigameiri þátt í þróun tölvunarfræðinnar en bara það að tína út skordýr.

Hvernig endar málshátturinn „oft er hænuhaus …“ eftir Sverri Stormsker?

„… rænulaus!“

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.