Metakosningar
Lýðræðisást Samfylkingarinnar í Hafnarfirði ríður ekki við einteyming.
Alþjóð veit að þar verður efnt til íbúakosninga um hvort álverið má stækka. Einhverjir hafa hnýtt í bæjarstjórnina fyrir að „þora ekki“ að ákveða þetta sjálf; íbúar kunna þó eflaust að meta að vera spurðir leyfis.
Í dag er síðan bráðskemmtileg frétt í Morgunblaðinu: „Hafa orðað spurningu um álverið.“ Þar kemur fram að:
- bæjarstjórnin hefur selt út til Capacent það verk að orða spurninguna í kosningunni,
- tillaga Capacent um fyrstu drög að spurningu er birt í fréttinni,
- og senda má athugasemdir um orðalag spurningarinnar á netfangið hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Þetta er afar lýðræðisleg leið til að ákveða hvernig eigi að halda lýðræðislegar kosningar um málið.
Ætli hún hafi verið ákveðin lýðræðislega? Var kosið um hvort kjósa skyldi um hvernig kjósa skyldi um álverið?