Archive for January, 2007

Örspeki dagsins

Friday, January 5th, 2007

Því sterkari sem sannfæring er, því auðveldar framkallar hún sjálfhverfu og yfirlæti.

Deiglan úr náðinni

Friday, January 5th, 2007

Úr grein á Deiglunni í dag:

Þann 26. mars 1904 sendi fjármálaráðherra Rússlands, Vladimir Kokovtsov, bréf til utanríkisráðherrans þar sem hann benti á að viðskipti og iðnaður Rússlands væri í æ ríkari mæli háður frjálsum skiptum á upplýsingum við erlend ríki með skeytum. Kjallinn bara nokkuð nettur.

(Leturbreyting mín.)

Ég get því miður ekki lesið Deigluna lengur.

Déjà vu í loftinu

Tuesday, January 2nd, 2007

„Ég ætla núna að tala um þau tækifæri sem við stöndum andspænis, tala um það sem liggur í loftinu [...] Stundum leynir það sér ekki að það liggur eitthvað í loftinu [...] Ég hef tvisvar orðið þess sterklega áskynja í pólitík að eitthvað lægi í loftinu. [...] Veturinn 1993-’94 lá líka eitthvað í loftinu. [...] Og núna liggur eitthvað í loftinu [...] En hvað er það sem liggur í loftinu? [...] Það sem liggur í loftinu er krafan um að gefa stjórnmálunum og stjórnmálaflokkunum nýtt inntak og nýja ímynd. [...] Þær hafa ekki náð að raungera það sem liggur í loftinu.“

Ingibjörg Sólrún í Borgarnesræðu fyrri, 2003

„Árið 2007 ber með sér vonir og væntingar um nýja tíma. Það liggur í loftinu að nú sé kominn tími til að breyta.“

Ingibjörg Sólrún í upphafi áramótaávarps síns í fyrradag

Ætlar hún alveg að gleyma jarðveginum?

Carter og kanínan

Tuesday, January 2nd, 2007
Carter stuggar fenjakanínunni frá

The Washington Post, exercising the news judgement that we in the White House had come to appreciate so keenly, headed the piece President Attacked by Rabbit and ran it on the front page.

Öllum er hollt að fræðast um árás fenjakanínunnar á Carter Bandaríkjaforseta árið 1979.

Mitt eigið net óskar lesendum til sjávar og sveita (allra landa) gleðilegs nýs árs og þakkar lesturinn á því liðna.


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.