Helber kúgun
Af forsíðu sunnudagsmoggans:
Fótboltinn hefur alltaf haft forgang en nú stend ég frammi fyrir þeirri bláköldu staðreynd að ég fæ hærri laun sem verkfræðingur en sem atvinnumaður í knattspyrnu.
Já, nú er mælirinn fullur, réttlætiskenndin komin að þanmörkum. Hingað og ekki lengra.
Ef á þessu landi er einn einasti knattspyrnumaður á verkfræðingslaunum eða þaðan af verra … þá er það einum kúguðum knattspyrnumanni of mikið!
Það er bláköld staðreynd.
Hvenær ætlar þjóðin að hætta að níðast á þessu fólki?
February 1st, 2007 at 9:10 am
:-)
Heyrst hefur að Ásthildi vanti “miðfótinn”, sem er mjög mikilvægur í knattspyrnu og launakjörum knattspyrnumanna.
February 1st, 2007 at 10:15 am
Ekki skal mig undra að Ásthildur sé tvífætt.
En það fyndna er forsendan sem greinilega liggur að baki orðum Ásthildar, sem henni þykir svo sjálfsögð að það þurfi ekki einu sinni að nefna hana:
„Atvinnumenn í verkfræði eiga vitanlega að vera á lægri launum en atvinnumenn í knattspyrnu (hvors kyns sem er). Annað er fáránlegt.“
Með öðrum orðum:
„Ef kona er á lægri launum sem knattspyrnumaður en sem verkfræðingur, þá er það hið fáránlega — ekki hitt, að karl sé á lægri launum sem verkfræðingur en sem knattspyrnumaður. Það er eðlilegt.“
Þetta er náttúrulega augljóst.