Rífandi spretta í gúrkum
Á vinstri kantinum á mbl.is er kassi með fyrirsögninni „Helstu mál.“
Þetta líkar mér; það er vesen að lesa allar fréttir, og nógu illa nýti ég tíma minn þótt ég sói honum ekki líka í fréttir eins og „Talsverðar skemmdir þegar eldur kviknaði út frá tölvu.“
En í kassanum „Helstu mál“ eru núna tvö mál:
- Saddam Hussein tekinn af lífi — síðasta frétt fyrir átta dögum
- Byrgið — síðasta frétt fyrir fimm dögum, og svo ekkifrétt í morgun: „Byrgismál rannsakað áfram“
Það eru líklega góðar fréttir að það séu engar fréttir.
—
Eftir hverju skilgreinast annars „helstu mál?“ Er til dæmis smámál að N-Kóreumenn séu sagðir aðstoða Írana við undirbúning kjarnorkutilraunasprengingar neðanjarðar? Kannski er ekki hægt að flokka mál undir „helstu mál“ nema það sé hægt að flytja fleiri en eina frétt um þau. Og kannski er þessi frétt smámál einfaldlega vegna þess að heimildir um þetta giftusamlega milliríkjasamstarf eru … ja, skoðum bara:
Yfirvöld í Norður-Kórea eru að aðstoða Írana við undirbúning kjarnorkutilraunasprengingar neðanjarðar, samkvæmt heimildum breska blaðsins Daily Telegraph [...]. Þetta kemur fram á fréttavef Ha’aretz.
Ég las þetta þá af mbl.is, sem þýddi það af haaretz.com (beint undir auglýsingunni „Meet Jewish Singles Near You“), sem kópí-peistaði það upp af telegraph.co.uk, sem hafði það eftir … ónefndum heimildum.
—
Önnur frétt um þessar mundir er sú að óveður geisi í Evrópu „og hafa tveir látist í umferðarslysum í Þýskalandi.“
Ekki vil ég gera lítið úr dauðsföllum, en í framhjáhlaupi má geta þess að 4.569 manns dóu í umferðarslysum í Þýskalandi árið 2006 að desember frátöldum … þ.e. hátt í fjórtán á dag. Það var örugglega fjandi hvasst í Evrópu, en varla er ólán þessara tveggja vegfarenda til marks um það?
—
Sterkasti gúrkuvísirinn er þó þessi fyrirsögn á forsíðu pappírsmoggans: „Lögregla kölluð að heimili vegna deilna um tölvunotkun.“
Þegar ég var unglingur stóðu einmitt oft deilur um tölvunotkun mína. Sjaldan sigaði móðir mín þó lögreglunni á mig. Og aldrei lenti það á forsíðu Moggans.