Fórnarlömb hinna fáu

Ég fæst hér sjaldan við tengla- og tilvitnanablogg en allt á sér undantekningar (líka sú regla, en það er önnur saga).

Sverrir Jakobsson hefur lagst með Stefáni Pálssyni (eins gott að klára þessa setningu strax) á þær verðugu árar að koma Moggablogginu um kring með formælingum í lok hverrar færslu. Nokkrir þarlendir bloggfuglar hafa hnýtt í þetta athæfi og það finnst Sverri fyndið

enda hlýtur það að teljast saga til næsta bæjar að tveir einstaklingar nái að leggja fjölmennasta netsamfélag landsins í einelti. Er Moggabloggið óðum að verða kúgaðasti meirihlutahópur landsins - að Þjóðkirkjunni frátaldri.

Megi Moggabloggsaðsókn réna niður í messumætingu!

One Response to “Fórnarlömb hinna fáu”

  1. Arngrímur Says:

    Gott að sjá þegar menn tileinka sér góða og gegna siði.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 82 access attempts in the last 7 days.