Mölur og ryð

Sennilega væri til hagsbóta fyrir andlegan þroska okkar og gildismat að mölur og ryð verkuðu tífalt hraðar.

Það væri hins vegar til baga í viðhaldi heimila og bíla.

Svona í meðallagi ótengt þessu: þegar starfsmenn Miklagljúfursþjóðgarðsins í Bandaríkjunum eru spurðir að aldri Miklagljúfurs (Grand Canyon), svara þeir „no comment.“ Þeir mega ekki gefa upp áætlaðan aldur þess. Hvers vegna ekki? Jú, vegna þess að það færi í taugarnar á sköpunartrúuðu fólki sem vill að Miklagljúfur hafi orðið til í Syndaflóðinu.

Þetta er ekki grín, og ekki tilviljun eða sérviska starfsmanna. Þetta er stefna ríkisstjórnar Bush. Meira um þetta hér.

One Response to “Mölur og ryð”

  1. Gunnar Says:

    Ég verð að taka upp hanskann fyrir Bandaríkjamenn. Sumir þeirra leggja stund á jarðfræði, líffræði, eðlisfræði o.s.frv.
    En óneitanlega eru margir þeirra best að sér í fáfræði.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.