Réttlætismál
Það er ekki til neitt réttlæti nema það réttlæti sem gengur jafnt yfir alla. Í þeim anda segir Mogginn í dag:
Blindir fái skotleyfi
Blindir bætast innan skamms í fjölmennan hóp veiðimanna í Texas ef nýtt frumvarp um veiðiréttindi þeirra verður að lögum. [...]
Þetta er auðvitað ekki nema sanngjarnt.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af skynsemi þessarar brýnu réttarbótar, því að lögin gera kröfu um sjáandi fylgdarmann, sem á að „tilgreina blindum um hversu marga þumlunga þeir þurfi að hreyfa skotvopnið til að hitta bráðina“ (frekar en eitthvað annað).
Á svipaðan hátt væri t.d. óhætt að setja siðsjónskertan bókstafstrúaðan einfeldning við stjórnvölinn á stóru kjarnorkuvopnabúri, ef hann fengi viti borna ráðgjafa til að leiðbeina sér um viðeigandi brúk þess.
Sko, bara svona svo að ímyndað dæmi sé tekið af handahófi.
December 12th, 2006 at 8:10 pm
http://news.bbc.co.uk/2/hi/americas/6173535.stm
… “Under current procedures, a sighted guide can assist a visually-impaired hunter by peering over the hunter’s shoulders and advising where to aim the gun and when to pull the trigger.”
“Republican Edmund Kuempel proposed an amendment to existing law that would permit “legally blind” people to use a laser-sighting device when hunting.
Current Texas law prohibits the use of laser sights, spotlights and headlights for hunting purposes.”
–
Þar sem blindir mega nú þegar veiða, þá virðist þetta frekar snúast um að þeir megi nota laser – sem aðrir geta ekki notað. Taktu með þér blindan vin á veiðar, og þú getur notað laser.
jedúddamía – hvað er næst, þú mátt ekki nota radarvara nema vera blindur – hvernig áttu annars að vita hvort þú sért að fara of hratt.