Barney
Hvað gerir forseti heimsins þegar hann tapar þingmeirihlutanum, stríðið hans er úrskurðað tómt rugl, varnarmálaráðherrann hans segir af sér með skömm, og aðeins 30% þjóðarinnar segist sátt við hann?
Jú, þá er kjörið að leika, ásamt helstu meðforingjum sínum, í alltof löngu jólamyndbandi um hundinn sinn — með gersamlega heilalaust blaður fyrir texta og söguþráð.
Þá er þorsti minn í hið fáránlega slökktur í bili. Freedom Fries hafi þökk fyrir!
December 13th, 2006 at 10:53 pm
ég sýndi nokkrum í vinnunni þetta myndband (bandarískur vinnustaður). Allir voru sammála um að þetta myndband væri eitt heimskulegasta sem þeir hefðu séð, og forsetanum til skammar. Þar að auki hafði enginn séð þetta áður, fyrr en íslendingurinn benti þeim á myndbandið.
spurningin er því, fyrir hverja er þetta? þetta var ekki sýnt í sjónvarpi (mér vitandi)… sem þýðir að einungis Bandaríkjamenn sem eiga pening (internet) munu sjá myndbandið. Ætli PR fulltrúar forsetans telji þetta góða leið til að auka vinsældir Bandaríkjanna í alþjóðasamfélaginu? ef svo, þá eru þeir líklega að reykja sýru. Sem fær mann til að spyrja, er í lagi að blindur maður fái byssuleyfi ef allir vinir hans eru blindir?