Hvers á Ragnheiður Ásta að gjalda?

Ragnheiður Ásta

Í myndatexta í Fréttablaðinu 17. febrúar 2006 er myndefnið sagt heita Ragnheiður Ásta Jóhannesdóttir.

Hún hlýtur að vera orðin langþreytt á þessu. Í útvarpi 16. mars 2005:

Ólafur Hannibalsson:

Nú er sem sagt Alþingi að fjalla um þetta og var ekki á aðalfundinum hjá ykkur einmitt mættir tveir alþingismenn Ögmundur Jónasson ef ég man rétt og Ragnheiður Ásta.

Friðrik Þór Guðmundsson: Ásta Ragnheiður.
Ólafur Hannibalsson: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og hvað heyrðist ykkur á þeim?

Í grein sr. Einars Eyjólfssonar í Morgunblaðinu 27. mars 2002:

Mörður Árnason og Ragnheiður Ásta Jóhannesdóttir hafa hafa á Alþingi lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um sóknargjöld.

Á Alþingi 7. apríl 2000:

Hjálmar Árnason: Það voru aðeins tveir hv. þingmenn, hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir og hv. þm. Ragnheiður Ásta Jóhannesdóttir sem töldu að það væri ekki nógu vel rætt.
Forseti Alþingis: Ásta Ragnheiður.
Hjálmar Árnason: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Þá er líka rétt að [...]

Á Alþingi 4. nóvember 1997:

Halldór Blöndal: Og það er svolítið athyglisvert í því sambandi, hv. frummælandi Ragnheiður Ásta, að [...]. Ragnheiður Ásta segir um það, með leyfi hæstv. forseta:
Forseti Alþingis: Það þarf að ávarpa þingmenn fullu nafni samkvæmt þingsköpum.
Halldór Blöndal: [...] Hv. þm. Ragnheiður Ásta talaði um Samkeppnisstofnun, [...]. En við tókum eftir því áðan að frummælandi, Ragnheiður Ásta Stefánsdóttir, hafði einmitt orð á því …
Forseti Alþingis: Þingmaðurinn heitir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og ber að ávarpa hana fullu nafni.
Halldór Blöndal: Ég þakka fyrir. Mér finnst nú hitt fallegra nafn, með leyfi hæstv. forseta. En við tókum eftir að sá ágæti þingmaður óskaði eftir því [...]

One Response to “Hvers á Ragnheiður Ásta að gjalda?”

  1. GJB Says:

    Það væri skemmtilegt ef skýringin fælist í því að til væri annar þingmaður að nafni Ragnheiður Ásta Jóhannesdóttir. En það væri sennilega of mikil tilviljun.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.