Samábyrgð

Í nýlegum pistli hvetur Þórunn Sveinbjarnardóttir mig sem karlmann til að „taka ábyrgð á framferði meðbræðra minna“ … þ.e.a.s. nauðgara.

Hún hvetur mig líka til að „mótmæla ofbeldi gegn konum hvar sem ég hef tækifæri til.“ Gott og vel; ég lýsi mig hér með kröftuglega mótfallinn því ofbeldi, eins og öðru ofbeldi. Mál til komið að ég tæki af skarið og kæmi út úr skápnum með þessa skoðun mína.

Hina hvatninguna ætla ég að grípa á lofti og gott betur: ég tek hér með ábyrgð á öllum stríðum, þjóðarmorðum, og öðrum óhroða sem aðeins karlmenn virðast fremja.

Jafnframt hvet ég Þórunni til að taka á sig ábyrgð á margvíslegum glæpum allra pólitíkusa, kvenna, Íslendinga, og meðlima annarra hópa sem hún kann að tilheyra.

Stafar ekki svona tal af einhverjum undirliggjandi misjafnlega meðvituðum grun um að „fimmti hver karlmaður sé nauðgari“? Aðhyllast kannski fleiri þá trú en fást til að viðurkenna það?

Af hverju þarf fólk sýknt og heilagt að skilgreina alla út frá hópum sem þeir tilheyra, og skilgreina hópana út frá verstu eintökum þeirra?

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 44 access attempts in the last 7 days.