Réttnefni

Hjá ÓB — Ódýru bensíni kostar lítrinn núna 115,30 krónur.
Á Olís kostar hann 116,20. Ég sparaði mér þá u.þ.b. fimmtíukall á fyllingunni; það nemur tæplega 3 km akstri á bílnum mínum. Best að muna að keyra ekki langt til að velja ÓB fram yfir Olís.
Ætti ekki ÓB að heita Ofurlítið minna dýrt bensín? Eða kannski 0,77% ódýrara bensín? Jafnvel ÁDB — Álíka dýrt bensín?
Neinei, það ætti að heita Óþarflega dýrt bensín: Í Olís á Sæbraut kostar lítrinn 112,70 krónur — talsvert minna en hjá ÓB og Atlantsolíu (þið vitið, þessum með slagorðið „Veljum samkeppni“). Og á Shell-stöðinni í Skógarhlíð er verðið 112,20 krónur.
Ódýrt bensín finnur maður sem sagt eftir staðsetningu, ekki vörumerki.
Best að stunda Skógarhlíðina: þar spara ég mér 230 krónur — næstum heila strætóferð! — á fyllingunni.