Markaðsvæn heimsmynd
Guðfræðingar hafa haft af því áhyggjur að hugtakið limbó valdi því fólki hugarangri og sálarangist sem syrgir börn sín. Sérfræðingar Páfagarð hafa því komist að þeirri niðurstöðu að öll börn sem deyja hljóti miskunn Guðs, burtséð frá því hvort þau voru skírð eða ekki í lifanda lífi. Benedikt XVI páfi mun að öllum líkindum staðfesta þetta í messu í dag.
Svona á þetta vera.
Það er ekki praktískt að hin eina sanna heimsmynd þurfi að vera meitluð í stein. Ef hún reynist ekki nógu viðkunnanleg eða markaðsvæn er bara að breyta og bæta — leggja málið fyrir sérfræðingana, fá fram málamiðlun, og tilkynna svo stefnubreytinguna í næstu messu. Kannski festa upp plaköt, „Verðlækkun á hugarró og sálarfriði.“ Negla þau á hurðina?
Batnandi kirkjum er best að lifa.
En fyrst endurskoðun er hvort eð er á döfinni: ég hef haft dálitlar áhyggjur af samkynhneigðum vinum mínum, og reyndar mér sjálfum líka með ótætis guðleysið mitt. Það er sko þetta með að þurfa endilega að brenna í helvíti. Ég er voða velmeinandi og hef mér fátt annað en guðsefann til sakar unnið (kannski laumast upp fyrir 90 nokkrum sinnum á landsbyggðinni), og ærlega sagt finnst mér þetta óþarflega harðneskjuleg málalok.
Mætti kannski fá þann dóm mildaðan í leiðinni?