Archive for September, 2006

Slökkt á fjórðu hverri peru

Friday, September 29th, 2006

Miðbærinn var pínulítið rökkvaður í gærkvöldi, því að eitthvað færri ljós loguðu en venjulega. Þar munaði þó ekki miklu. Vel hefði mátt lesa símaskrána úti á götu, eldspýtnalaust. Það er dimmara í dæmigerðri íbúðargötu í Bandaríkjunum öll kvöld.

Eftir dálítinn göngutúr stóðum við á Skólavörðustígnum og röbbuðum, en tókum loks eftir að götuljósin lýstu eins og endranær. Endurkoma ljóssins hafði alveg farið framhjá okkur. Slíkt var myrkrið.

Nújæja.

Lífsnautnamaðurinn

Friday, September 29th, 2006

Aaahhh, heitir sokkar úr þurrkara. Þetta er lífið.

Skemmtifjölpóstur

Wednesday, September 20th, 2006
Fýlupúki

Fýlupúki.

Elsku/Kæra/Kæri ________,

þú ert mér mjög kær og mér þykir vænt um þig og ég vil síst af öllu særa þig … en þú veist að ég vil ekki fá svona póst, er það ekki?

Flestir svona fjölpóstar hafa farið marga túra um netið og lent í boxinu mínu oftar en einu sinni … og fæstir kættu mig neitt að ráði í fyrsta skiptið, hvað þá það fimmta.

Auk þess framsenda margir póstinn ásamt öllum netföngum viðtakenda svo að hann inniheldur brátt fleiri hundruð netfanga, þar á meðal mitt, og fleytir þeim út um allan heim. Loks ratar hann til þeirra sem safna netföngum til að senda öllum heiminum ruslpóst með auglýsingum um typpastækkanir og klámvefi og viagra. Já, þeir safna markvisst netföngum úr svona pósti. Þeir kunna þér bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Betra er að setja netföngin í Bcc (blind carbon copy) svo að þau fylgi ekki póstinum áfram. Best er þó að framsenda ekki svona póst, eða a.m.k. bara til þeirra sem þú veist að vilja fá hann. Þú gætir líka opnað blogg og birt þetta þar, og þá gætu þeir lesið það sem sækjast eftir því.

Ég bið þig alltént að sleppa mér úr listanum framvegis. Án þess að meina neitt illt með því eða vilja móðga neinn. Ég veit að þér gengur gott eitt til, og kann að meta það. Þetta veitir mér bara ekki þá gleði sem þú vonaðir, og veldur skaða sem þú vissir ekki af.

(Þegar þú sendir þitt eigið frumsamda skemmtiefni vil ég hins vegar gjarnan fá það. En fyrir alla muni settu þá netfangið mitt í Bcc ef þú sendir það á fleiri um leið.)

Bestu kveðjur,

— ________

Notið að vild.

Ekki bleyta hausinn!

Friday, September 1st, 2006

Svipmynd úr fundarstarfi Sjósundsfélags Landsbanka Íslands (SLÍ). Markús marflatur en heldur höfðinu heitu.

Splass


Bad Behavior has blocked 67 access attempts in the last 7 days.