Fjöldapóstur

Vandamálið við óumbeðinn fjöldapóst er að hann er oft svo fíngert settur fram og grípur ekki augað nógu vel.
Það er eins og athyglin mín þjóti alltaf eitthvert annað í stað þess að veita póstinum þann skerf af tíma mínum sem hann á heimtingu á.
Ég held að lausnin felist í því að nota fleiri leturstærðir, fleiri liti, og fleiri samsetningar af feitletrun, undirstrikun, og skáletrun.
Og óreglulegri línuskiptingar, færri bil
á milli efnisgreina, fleyri staffsetningarnýjungar, mislöng bil á milli orða, og umfram allt sem allra flest eru-ekki-allir-í-ztuði upphrópunarmerki!!!!!!!!!!
Og letrið Comic Sans MS og krúttlega broskallinn með kartöflunefið :o) ef þess er nokkur kostur.
Það er lykillinn.
August 31st, 2006 at 12:13 am
Kannski var einhver búin að fá sér aðeins of mikið af bjór og leiddist ófrumlegur fréttaflutningur. Verður maður ekki að vera með alla möguleika úti í þessu litla samfélagi?
September 14th, 2006 at 8:10 am
Stórmerkilegt að félagar mínir í Úganda (þeir sem fundu óskilgreindar fjárhæðir á bankareikningi) hafa ekki tekið upp þessa venju með upphrópunarmerkin og leturstærðirnar. Þeir eru alveg að misskilja hvernig á að ná athygli.