Staksteinhissa

Úr Staksteinum í Mogganum í dag:
Hverjum dettur í hug, að þessi röggsami ráðherra hafi vísvitandi falið upplýsingar fyrir Alþingi?
Hvers vegna ætti hún að hafa haft áhuga á að leyna slíkum upplýsingum?
Það er hægt að ganga út frá því sem vísu, að íslenzkir ráðherrar leyna Alþingi ekki vísvitandi upplýsingum því að bæði þeir og aðrir bera djúpa virðingu fyrir Alþingi sem stofnun.
Æ hve ég er feginn að vita þetta. Ég sem hélt að einhver ástæða væri til að veita stjórnmálamönnum aðhald. Kjáni gat ég verið; ég gleymdi alveg að hugsa út í þetta með djúpu virðinguna. Og röggsemina!
Hvar værum við án svona djúpviturrar og hnífskarprar greiningar á þjóðmálunum og haukfránnar rannsóknarblaðamennsku?
August 29th, 2006 at 10:34 pm
Það sem mér finnst merkilegast við þessa frétt er að ég held þér hafi tekist að finna þrjú undarlegast útlítandi orð íslenskrar tungu, þ.e. “djúpviturrar”, “hnífskarprar” og “haukfránnar”. Ég held þú farir að komast á fyndnalistann minn.
Ekkifréttin sjálf er svo mikil rökleysa að ég nenni ekki einu sinni að ræða hana.
August 29th, 2006 at 11:16 pm
Þessar eignarfallsmyndir urðu mér einmitt til sérviturrar kátínu þegar þær goppuðust upp úr mér. Gott að mér var ekki einum skemmt!
August 31st, 2006 at 12:09 am
Vegna þessarra djúpvitru o.s.frv. erum við Íslendingar og eins og aðrar þjóðir frekar kúguð og ósjálfstæð. Látum verk einhverra ömurlegra fulltrúa tala. Hvar eru allir sem eiga að sjá um okkur hina sem þorum ekki af ótta við að enginn standi á bak við okkur þegar við látum til skarar skríða? Þetta er beisik alþýðunnar sem hugsar. Hún er hrædd við Innlit/Útlit-fólkið sem tekur ekki þátt…og svo hina sem þora ekki að vera öðru vísi. Að vera öðruvísi= á móti því sem kemur manni um koll að vera ekki á móti. Uss ég held ég verði að flytja eitthvað annað…hmmm…
August 31st, 2006 at 12:11 am
p.s.
Hún var þokkalega aumingjaleg í kveld í Varpljósinu og svaraði ekki af andans list né sem stjórnmálamaður með hagsmuni þjóðar í huga. Hún drullaði upp á bak og gleipppti það.
September 14th, 2006 at 8:05 am
Einhvernvegin er erfitt að sjá Valgerði fyrir sér sem höfuðpaur í Hnjúkaleiknum.