Sjósund

Deildin mín hefur dottið í dálitla sjósundsdillu undanfarið. Snæbjörn deildarstjóri átti í veðmáli við forstöðumanninn Viggó um megrun hins síðarnefnda; Viggó hafði staðið við sitt svo að fyrir Snæbirni lá að synda úr Nauthólsvík yfir í Kópavog, um 600 metra.

Þess ber að geta að Snæbjörn er kulvísasti maður á jarðríki. Hann kvartar undan köldum gusti ef einhver dæsir nálægt honum.

Hann hefur skellt sér í sjóinn nokkrum sinnum undanfarið til að herða sig upp fyrir sundið. Í síðustu viku brá ég mér með, og þá tók hann upp á því að efna loforðið … og tvöfalda það: hann synti til baka líka. Var u.þ.b. 45-50 mínútur að þessu. Sko strák.

Í þessu myndskeiði sést hann skríða upp úr sjónum eftir afrekið, drafandi og valtur á fótum. Hann gekk sýnilega ekki heill til skógar í fyrstu — okkur leist ekkert á blikuna — en rúmlega klukkustund síðar var hann mættur að styðja Pablo í Tom-Selleck-yfirvaraskeggskeppninni á skemmtistaðnum Sirkús. Nú, nokkrum dögum síðar, virðist hann ekki tiltakanlega skertur að neinu leyti.

Og í þessu myndskeiði sést ég fletta mig klæðum og leggjast til (mun styttra) sunds.

Ég tek eftir að á 45 sekúndum hvái ég (eða hvæ?) þrisvar „Hvað segirðu?“ Ég ætti kannski að hafa einhverjar áhyggjur af því.

Hvað um það, allir í sjóinn! Bætir, hressir kætir! Sjáið bara Snæbjörn.

6 Responses to “Sjósund”

  1. SBÓ Says:

    Þú hváir… og slæmt að þurfa að gera það þrisvar á svo skömmum tíma, en flott að fara í sjóinn. Ég tók nokkrar byltur þarna á kajaknámskeiði nýlega og varð ansi kalt.

  2. GÞB Says:

    Takk, en „hvæ“ var sko grín, svo að það komi nú fram …

    (Þú hélst kannski að grín þekktist almennt á því að það væri fyndið. En það er ekki svo.)

  3. SBÓ Says:

    Já, það hlaut að vera að ég hefði misst af einhverju. En mér finnst líka fáir fyndnir aðrir en ég sjálf.

  4. Snæbjörn Says:

    Í gær 27. ágúst 2007 syntum við yfir í Viðey. Það var mjög svo hressandi!

  5. GÞB Says:

    Fregnir herma að þú hafir hríðskolfið eins og barn ;) … en ég get varla strítt þér fyrst ég mætti ekki.

  6. Bibba Says:

    Er það nú alveg vísssst að þú hafir verið þarna, Snæbjörn ?
    Ég var nebbblea að vesenast þarna og ég er vön að gamlir skólafélagar heilsi mér þegar þeir sjá mig. Að minnsta kosti þú, Snæbjörn. Þú hefur þá verið fljótur að skjálfa inn í bíl…
    Svakalega eru menn annars orðnir miklir jaxlar :)

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 20 access attempts in the last 7 days.