Heimilisskipulag

Schweppes Tonic

Þessi svaladrykkur á örugglega ekki að vera svona á litinn.

Mér finnst ég aldrei hafa almennilega nóg pláss í ísskápnum mínum og öðrum eldhússkápum. Það er ekki að ósekju. Í nótt fannst þar:

  • Egils tónik, átekið, rann út 12. júní 2006.
  • Jólaappelsín, rann út 30. apríl 2006.
  • Sprite Zero, átekið, rann út 24. febrúar 2006.
  • Schweppes tónik, rann út 6. janúar 2006.
  • Pringles Dippers Original, rann út í júlí 2005.
  • Nescafé Gull, rann út 11. júlí 2004. Nota aldrei slíkan óþverra.
  • Season All, rann út í maí 2004.
  • Tveggja lítra Schweppes tónik, óátekin, rann út 11. maí 2004. Að vísu ekki í skáp, heldur úti á svölum, og hefur að öllum líkindum verið þar frá áramótum 2003. Miðinn fremur máður. Malla kallaði hana svaladrykkinn.
  • Stórt box utan af Skafís, tómt, rann út 17. mars 2004.
  • Schweppes tónik, átekið, rann út 12. mars 2004.
  • Corona-bjór, rann út 8. febrúar 2004.
  • Fjórar flöskur af Erdinger Weißbier sem renna ekki út fyrr en eftir mánuð! [Núna þrjár.]
  • Plastpoki sem í fyrstu virtist tómur en síðan reyndist innihalda svarta, harða útfellingu af óþekktum uppruna.
  • Sex krukkur af salsa, aðeins þrjár þeirra útrunnar.
  • Tvær tómatsósuflöskur, önnur rann út í október 2005, hin í desember 2003. Báðar óopnaðar. Talsverður litarmunur; báðir litirnir ógnvekjandi.

Ég skil ekki þessa tónikmergð. Ég drekk ekki neinn drykk með þeim óhroða í, og þaðan af síður tónikið sjálft. Og hef aldrei gert.

Útrunninn bjór er víst sjaldséður á flestum heimilum. En Corona er bara ódrekkandi gutl.

Þess má geta að eldhúsið mitt er mjög lítið, ísskápurinn fremur lítill, og matarskápurinn aðeins einn.

Læt þetta standa hér, mér til háðungar.

One Response to “Heimilisskipulag”

  1. Kíníngrín [ Mitt eigið net Blog Archive ] Says:

    [...] Fyrst minnst var á tónik … það farsæla fyrirtæki Coca Cola hefur getið af sér ýmislegt annað en Coca Cola. Þar á meðal er gosdrykkurinn Beverly, sem inniheldur einmitt kínín eins og tónik. [...]

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 53 access attempts in the last 7 days.