Að plata án þess að segja ósatt

HeppilegraSannara

Vinstra grafið er eins og Fréttablaðið birti það í gær, föstudag. Ha, lesa tvöfalt fleiri Fréttablaðið?

Takið eftir hve ásinn er gerður daufur og grár svo að sem fæstir taki eftir því að það er klippt neðan af honum. Samt er þess gætt að neðst sjáist litla hakið sem segir „þessi ás nær ekki niður í núll“ svo að ekki sé hægt að kalla grafið beinlínis ósatt.

Hægra grafið er eins og ég hefði birt það. Þar nær ásinn niður í núll og grafið gefur því rétta mynd af þeim hlutfallslega mun sem kemur fram í Gallup-könnuninni.

Þess vegna fæ ég seint vinnu við markaðssetningu. Ég hef svo óheilbrigðar hugmyndir um hreinskilni.

5 Responses to “Að plata án þess að segja ósatt”

  1. EH Says:

    Mér finnst þetta snilld. Eitt það dásamlegasta sem ég lærði í háskólanum var að finna hvernig hægt er að afvegaleiða fólk með rangri aðferðafræði og sjónblekkingum.

  2. GÞB Says:

    Já, það er afar praktískt að skilja þær aðferðir … praktískt bæði fyrir gerendur og þolendur. :)

  3. Hjalti Says:

    ég skil ekkert afhverju þeir létu ekki y-ásinn byrja í 47%

  4. GÞB Says:

    Það er ósatt — þú skilur það víst. :)

    Árangursríkt plat er hófsamt; ef það hljómar of ótrúlega fer fólk að efast og rýna í það. Plat virkar því aðeins að ekki sé rýnt.

  5. Grafalvarlegt [ Mitt eigið net ] Says:

    [...] eru oft stélstýfð gagngert til þess að blekkja, að plata án þess að segja ósatt. Hér virðist mér stýfingin hins vegar réttlætanleg. Koltvísýringur verkar víst þannig í [...]

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.