Kúvending og kirsuberjatínsla

Hebreskt biblíuhandrit

Úr að hluta til ágætum Bakþankapistli Davíðs Þórs:

Það er hreint ótrúlegt hve krónólógía sköpunarsögunnar er lík þeim hugmyndum sem færustu vísindamenn nútímans gera sér um þróun lífsins á jörðinni.

Þá hafa færustu vísindamenn nútímans kúvent … eða Biblíunni verið breytt (það væri svosem ekki í fyrsta sinn). Hvað í veröldinni sér hann líkt með þessum tveimur myndum af þróun lífs á jörðinni?

Um margvísleg vísindaafrek gyðinga í gegnum tíðina hlýtur að mega finna betri dæmi en sköpunarsögu Biblíunnar.

Davíð Þór getur þess líka að:

Í Gamla-Testamentinu er að finna elsta, þekkta mannréttindasáttmála sögunnar. Þar er kveðið skýrt á um skyldur manna gagnvart fólki af öðrum þjóðernum og því tryggð ákveðin grundvallarréttindi, hugmyndafræði sem aðrir uppgötvuðu þúsöldum síðar.

Um meðferð útlendinga segir sannlega (Exodus 22:21):

Útlendum manni skalt þú eigi sýna ójöfnuð né veita honum ágang, því að þér voruð sjálfir útlendingar í Egyptalandi

og það er voða fínt … en strax í næsta kafla kemur (Leviticus 25:44-46):

44Viljir þú fá þér þræla og ambáttir, þá skuluð þér kaupa þræla og ambáttir af þjóðunum, sem umhverfis yður búa. 45Svo og af börnum hjábýlinga, er hjá yður dvelja, af þeim skuluð þér kaupa og af ættliði þeirra, sem hjá yður er og þeir hafa getið í landi yðar, og þau skulu verða eign yðar. 46Og þér skuluð láta þá ganga í arf til barna yðar eftir yður, svo að þau verði eign þeirra. Þér skuluð hafa þau að ævinlegum þrælum. En yfir bræðrum yðar, Ísraelsmönnum, skuluð þér eigi drottna með hörku, einn yfir öðrum.

Munið bara, þegar þið hneppið útlendinga í þrældóm og drottnið yfir þeim með hörku, að sýna þeim eigi ójöfnuð í leiðinni. Það er alveg bannað í mannréttindasáttmálanum.

Þetta versnar þó um allan helming í Devteronomium 7:1-5:

1Þegar Drottinn Guð þinn leiðir þig inn í landið, sem þú heldur nú inn í til þess að taka það til eignar, og hann hefir stökkt burt undan þér mörgum þjóðum: Hetítum, Gírgasítum, Amorítum, Kanaanítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum, sjö þjóðum, sem eru fjölmennari og voldugri en þú, – 2og er Drottinn Guð þinn gefur þær á vald þitt og þú sigrast á þeim, þá skalt þú gjöreyða þeim. Þú skalt eigi gjöra sáttmála við þær né sýna þeim vægð. 3Og eigi skalt þú mægjast við þær. Þú skalt hvorki gefa sonum þeirra dætur þínar né heldur taka dætur þeirra til handa sonum þínum. 4Því að þær mundu snúa sonum þínum frá hlýðni við mig og koma þeim til að dýrka aðra guði. Mundi reiði Drottins þá upptendrast í gegn yður og hann eyða þér skyndilega. 5Heldur skuluð þér svo með þá fara: Þér skuluð rífa niður ölturu þeirra, brjóta í sundur merkissteina þeirra, höggva sundur asérur þeirra og brenna skurðgoð þeirra í eldi.

Ætli höfundur þessa texta vildi nú á dögum leyfa Ísraelsmönnum að „gjöra sáttmála við“ Palestínumenn, eða a.m.k. „sýna þeim vægð?“ Biblíukærir menn telja bókina alla orð Guðs; vill Guð núna að Ísraelsmenn „gjöreyði“ Palestínumönnum, eða eru Palestínumenn rétthærri en Hetítar og Gírgasítar fyrir einhverja mildi Hans?

En hugmyndir Gamla testamentisins um mannréttindi gerðu ekki alltaf upp á milli þjóða (Leviticus 24:16):

Og sá er lastmælir nafni Drottins, skal líflátinn verða. Allur söfnuðurinn skal vægðarlaust grýta hann. Hvort heldur er útlendur maður eða innborinn, lastmæli hann nafninu, skal hann líflátinn.

Aðrar þjóðir höfðu ekkert endilega sama guð með sama nafn, en þeim var hollast að mæla ekki styggðaryrði um guð Júdeumanna. Það er ekki heiglum hent að verða fyrir barðinu á mannréttindum Gamla testamentisins.

Það er samt lítið varið í svona kirsuberjatínslu úr Gamla testamentinu; guðfræðingurinn Davíð Þór gæti óefað bent á jákvæða punkta jafnóðum og ég neikvæða, og hann héldi þá keppni örugglega lengur út. Biblían er hvorki algóð né alvond, frekar en önnur mannanna verk.

En að segja hana í ótrúlega miklu samræmi við kenningar nútímavísinda um þróun lífs — þar er dálítið langt seilst. Og að heyra hana lofaða sem göfuga og mannréttindalega — bókina sem lýsir því sisvona hvernig (ekki hvort) standa skuli að sölu dætra í þrældóm (Exodus 21:7), og fyrirskipar skilyrðislaust líflát þeirra sem vinna á laugardegi (Exodus 35:2) — það vekur mér óbragð í munni.

Kannski er það bara vegna þess að ég get ekki hugsað um Biblíuna án þess að hugsa til þess hve margir ætla henni sess sem hún stendur alls ekki undir: að vera frumheimild og rót heimsmyndar okkar og skilgreining siðferðis okkar og hegðunar í lífinu. Davíð Þór ætlar henni varla þann sess (svo að ég viti), en í ljósi þess sess(s) þoli ég honum illa að nefna jákvæðar hliðar hennar vegna þess hve staðfastlega margir líta fram hjá þeim neikvæðu.

2 Responses to “Kúvending og kirsuberjatínsla”

  1. Baal Says:

    Þessi skemmtilega fullyrðing Davíðs Þórs um ótrúleika krónólógíu sköpunarsögunnar vakti hjá mér áhuga á að kanna þessa fullyrðingu lauslega. Sköpunarsagan er einhvern veginn svona (tek það fram að ég hef ekki lesið Biblíuna né ætla mér að gera það):

    Guð skapaði:
    1. Himinn og jörð (þó ekki Himnaríki og Jörðina).
    2. Ljós.
    3. Himnaríki.
    4. Land (Jörðin).
    5. Gróður (gras, kornjurtir og ávaxtatré).
    6. Sólina, tunglið og stjörnurnar.
    7. Sjávardýr og fugla.
    8. Landdýr.
    9. Manninn.
    Svo tók hann sér frídag.

    Þá að berjatýnslunni. Best að halda sig við þróun lífsins á jörðinni sem Davíð Þór vísar til:

    Gróður, dýr í sjónum og fuglar, dýr á landi, maðurinn.

    Já þetta er hreint alveg ótrúlega líkt þróunarkenningum nútímans. Ja, alla vega í réttri röð. Nema kannski þetta með líf í sjónum og gróðurinn. Og kannski smáatriðið með að í sjávardýraupptalningunni virðast hvalir taldir með, sem ekki komu á undan landdýrunum. Reyndar komu heldur ekki fuglar á undan landdýrum almennt. Svo er þetta spurning um hvenær gras, kornjurtir og ávaxtatré komu fram á sjónarsviðið. En ef við einföldum þetta aðeins, þá verður þetta svona:

    Gróður, dýr, menn.

    Þá er þetta alveg glettilega líkt einhverju sem “færustu vísindamenn nútímans” gætu látið frá sér. Reyndar er ég þá, fyrir utan einfaldanirnar, búinn að leiða hjá mér að sólin, tunglið og stjörnurnar eru á alveg stjarnfræðilega vitlausum stað (milli gróðurs og dýra) sem og það smáatriði að Himnaríki og Guð eiga ekki samastað í vísindakenningunum. Já og svo það smáatriði að þetta er sköpunarkenning og ekki þróunarkenning. En annars er þetta svipað. Hreint ótrúlegt.

  2. GÞB Says:

    Já, ég sé það núna. Þetta er eiginlega alveg eins.

    Tek’etta á mig.

    : )

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 43 access attempts in the last 7 days.