Orðengilsháttur

Þrátt fyrir alþekkt ofurskipulag mitt á íbúð og eigum og lífinu öllu hef ég týnt bók sem ég vildi gjarnan finna núna. Hún heitir Orðengill og er safn Sverris Stormskers af nýstárlegum orðskýringum gamalla orða, t.d. „viðbjóður = timbursölumaður“ og „fantasía = dyravörður á skemmtistað.“
Ég er veikur fyrir svona barnaskap eins og Sverrir, og á meðan ég finn ekki bókina neyðist ég til að ástunda minn eigin orðengilshátt. Hér eru nokkrir englar:
- Óþverri
- Gnægtabrunnur, óþrjótandi auðlind
- Forgjöf
- Sinnuleysi, að gefa skít í hlutina
- Undanrenna
- Heigull, sá sem hleypst undan merkjum
- Lærdómur
- Fegurðarsamkeppni. Mögulega vaxtarræktarkeppni.
July 8th, 2006 at 3:27 am
fantasía getur líka verið tæki sem sigtar fanta frá heiðarlegu fólki. Leynilögreglumaður.