Archive for July, 2006

Breathe

Friday, July 14th, 2006
Dark Side of the Moon

Ég sat á honum Sóloni í kvöld og saup rauðvín með ágætum Eistum, og þar var spiluð hraðtaktsdansútgáfa af laginu Breathe af tímamótaplötu Pink Floyd, Dark Side of the Moon.

… For long you live and high you fly
But only if you ride the tide
And balanced on the biggest wave
You race toward an early grave.

Í hröðum danstakti. Svaka stuð.

Ég meina’ða. Syd Barrett hefur ekki verið dáinn í viku. Má ekki leyfa honum að kasta lífsmæðinni í nokkra mánuði áður en hann þarf að fara að bisa við að hringsnúast í snemmbúinni gröf sinni?

Atburðir í sögu trúarbragða

Sunday, July 9th, 2006

Ég var að finna „tímarit“ ☺ yfir helstu atburði í sögu kristninnar, og annað fyrir sögu gyðingdóms, og enn eitt sem setur saman atburði úr sögu beggja.

Ritið má draga til og frá með músinni. Smella má á einstaka atburði til að lesa nánar um þá. Og leita má í gögnunum með því að slá inn texta í „Filter“ og „Highlight“ neðst.

Mér finnst þetta fremur flott framsetning, og skemmtileg leið til að fræðast.

Leyniþjónninn

Wednesday, July 5th, 2006

Það er þrennt áhugavert við þennan mann sem ekki má greina á þessari óskýru mynd.

  • Kápan hans var svört leðurkápa.
  • Hann var með svört sólgleraugu í rigningarsúld um kvöld.
  • Hann stóð þarna grafkyrr, aleinn, í a.m.k. klukkustund, og horfði á stjórnarráðið.

Æi Björn minn Bjarnason … þú þarft að þjálfa þá betur. Þetta er bara kjánalegt.

Leyniþjónninn

Orðengilsháttur

Wednesday, July 5th, 2006
Orðengill

Þrátt fyrir alþekkt ofurskipulag mitt á íbúð og eigum og lífinu öllu hef ég týnt bók sem ég vildi gjarnan finna núna. Hún heitir Orðengill og er safn Sverris Stormskers af nýstárlegum orðskýringum gamalla orða, t.d. „viðbjóður = timbursölumaður“ og „fantasía = dyravörður á skemmtistað.“

Ég er veikur fyrir svona barnaskap eins og Sverrir, og á meðan ég finn ekki bókina neyðist ég til að ástunda minn eigin orðengilshátt. Hér eru nokkrir englar:

Óþverri
Gnægtabrunnur, óþrjótandi auðlind
Forgjöf
Sinnuleysi, að gefa skít í hlutina
Undanrenna
Heigull, sá sem hleypst undan merkjum
Lærdómur
Fegurðarsamkeppni. Mögulega vaxtarræktarkeppni.

Vesalings íslenskunemarnir

Monday, July 3rd, 2006
James að borða brauð

Skyndilega rann á hann mataræði og hann fékk sér hungursneið af prestsbrauði.

Hvernig á nokkur maður að læra þetta mál?

Ég er ekki háttvís maður; er bæði illa kunnugur kveðskapartegundum og hef sjaldnast vit á að hátta á réttum tíma. Prófa að gera það núna með fyrra mótinu.

Myndin er notuð með leyfi höfundar.Mynd eftir James Neill. Sum réttindi áskilin.

Þýsk-búlgarskur skordýravandi

Sunday, July 2nd, 2006
Skordýr

Fyrir óralöngu álpaðist ég í unglingasumarbúðir í Sachsen-Anhalt.

Þetta var hlýtt og rakt sumar og gróska í skordýralífinu slík að lítt sigldum Íslendingi þótti nóg um. Mig brast bæði þýsku og þroska til að ræða nokkuð merkilegt svo að ég spurði Vladimir hinn búlgarska:

„Habt ihr in Bulgarien viele Insekten?“
(Er mikið af skordýrum í Búlgaríu?)

Vladimir svaraði:

„Ja, es ist ein großes Problem, viele junge Leute sind Insekten.“
(Já, það er voðalegt vesen, mörg ungmenni eru skordýr.)

Ég var neyðarlega lengi að skilja að hann hefði sagt „in Sekten“ … þ.e. í sértrúarsöfnuðum.


Bad Behavior has blocked 67 access attempts in the last 7 days.