Fordómar í Litla svarta Sambó

Litli svarti Sambó

Hér um árið enduruppgötvaði ég Strumpana, las Le Schtroumpf Financier (með harmkvælum) og uppgötvaði að hún var hreinlega gegnsósa í marxískri hugmyndafræði. Það var fallegt að allir fengju brauð hjá Bakarastrumpi eftir þörfum, en afleitt þegar Bakarastrumpur fór að taka borgun og leggja peningana í nýstofnaðan banka Strumpaþorps. Og Bankastrumpur var auðvitað hundnískur og illgjarn strumpítalisti sem hneppti hrekklausa strumpa í lánauð. Mér fannst þetta stórmerkilegt.

Fyrir ekki svo löngu birtist í Mogganum grein eða viðtal um skýlausa kynþáttafordóma í barnasögunni „Litli svarti Sambó.“

Ég mundi óljóst eftir þessari sögu úr grárri barneskju en gat ekki rifjað upp söguþráðinn. En án þess að ég leggi að jöfnu marxisma og rasisma vissi ég að mér gætu allt eins hafa yfirsést hvítfyssandi kynþáttafordómar í Litla svarta Sambó eins og önnur hugmyndafræðileg marínering í Strumpunum.

Ég lagði ekki í að leita bókina uppi í foreldrahúsum, en netið kom til bjargar. Hér er sagan um litla svarta Sambó. Ég geri ráð fyrir að þetta sé hin eina sanna.

Og bara sorrý … Sambó er vissulega teiknaður næstum biksvartur, og kannski með þykkari varir en þyrfti, en þessi saga gefur ekki í skyn að þeldökkir séu á einhvern hátt lakari hvítum, siðferðislega eða greindarlega eða neinslega. Sambó gerir ekkert af sér, og er klókur og hugrakkur að ná fötunum sínum aftur á meðan tígrisdýrin bítast. Og foreldrar hans virðast duglegir og gjafmildir og góðir við hann. Tengingin við tígrisdýr er Sambó varla til hnjóðs, neitt frekar en ef sagan fjallaði um ljóshærðan bláeygan Svía sem lendir í útistöðum við elg. Að vísu hljómar nafnið Sambó afrískt og tígrisdýr búa ekki í Afríku (nema sem nýbúar), en það er í mesta lagi staðreyndavilla. Rasismi finnst í þessari sögu því aðeins að lesandinn hafi einsett sér að sjá hann.

Hún kennir hins vegar að tígrisdýr verði að bráðnu smjöri ef þau þeytast of hratt í hringi. Í því felst kannski óvirðing fyrir stórköttum, eða a.m.k. fyrir matvælavísindum og heilbrigðri skynsemi. Svoleiðis á vissulega ekki að hafa fyrir börnum.

One Response to “Fordómar í Litla svarta Sambó”

  1. Baal Says:

    Litli svarti Sambó er Indverji. Bara svona koma því að.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.