Umræða og athafnir og hugarreflexinn

Skoðanir okkar á orðum og hugtökum litast oft af allra fyrstu hugsun okkar þegar við heyrum þau nefnd. Hugarreflexinum.
A.m.k. gildir þetta um mig.
Forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar fann upp hér um árið að „umræðustjórnmál“ væru afar ákjósanleg og söluvæn á pólitíska markaðstorginu.
Það hljómar voða vel, ræða hlutina svolítið í rólegheitum yfir kaffi eða bjór, ekkert að flana að neinu. Skynsamlegt.
En þegar ég heyrði fyrst orðið „umræðustjórnmál“ datt mér samstundis í hug sena úr kvikmyndinni „Life of Brian,“ þar sem Brian hefur lent í klóm Rómverja og Judith stormar í ofboði inn á Yes-Minister-ískan fund pólitísku byltingarhreyfingarinnar People’s Front of Judea:
Judith: They’ve arrested Brian!! Allir: What? Judith: They’ve dragged him off. They’re going to crucify him. Reg: Right. This calls for immediate discussion. Judith: What?!? Rebel 1: Immediate. Rebel 2: Right. Loretta: New motion? Reg: Completely new motion. Er, that, er … that there be, er, immediate action, Francis: … er, once the vote has been taken. Reg: Well, obviously once the vote has been taken, you can’t act on a resolution ’till you’ve voted on it. Judith: Reg, for God’s sake, let’s go now, please! Reg: Yeah, yeah. Right, right. In the, in the light of fresh information from, er, sibling Judith … Loretta: [fundarritari] Er, not so fast, Reg.
… o.s.frv. Þetta datt mér í hug. Eftir það gæti ég ekki borið virðingu fyrir „umræðustjórnmálum“ þótt ég reyndi.
Samtökin People’s Front of Judea voru reyndar því marki brennd að athafnir þeirra, þótt fáar væru, voru enn aulalegri en orðaflaumurinn. Umræðustjórnmál áttu þá líklega vel við þau.
Svo kom Björn Ingi með „athafnastjórnmál,“ glænýtt á markaðinn. Það minnti mig ekki á neitt asnalegt atriði úr kvikmynd. En fyrsta hugsunin mín var: æi nei. Ekki framsóknarathafnir. Ekki fleiri útnárajarðgöng. Ekki enn meiri ríkisrekstur landbúnaðar. Plís.
February 3rd, 2007 at 1:35 pm
[...] hún hafi verið ákveðin lýðræðislega? Var kosið um hvort kjósa skyldi um hvernig kjósa skyldi um [...]