Forviða
Manneskja getur verið:
| -stæð | -stök | |
|---|---|---|
| ein- | einstæð | einstök |
| sér- | sérstæð | sérstök |
Þetta er par af pörum af forskeytum og viðskeytum þar sem allar samsetningar eru góð og gild orð sem virka í sama samhengi.
Ætti eiginlega að heita ferskeytla, en það orð er frátekið. Skeytaferna er bara ekkert skemmtilegt. Svo að hér með heitir þetta … forviða!
Eru til fleiri forviður? Jafnvel einhverjar stærri en 2×2? Mér detta engar í hug í fljótu bragði.
May 17th, 2006 at 10:12 pm
Greinilega brjálað að gera hjá þér.
May 18th, 2006 at 5:43 am
Reyndar alveg feikinóg að gera. Er í fríi að nafninu til, en samt búinn að vinna fullt á netvæddum kaffihúsum og heima hjá Hjalta. En orðagleðin lætur ekki að sér hæða. Ó nei.
May 18th, 2006 at 5:25 pm
Hug- og hlut- eru góðir kandidatar fyrir stærri forviðarforskeyti.
Greinilega brjálað að gera hjá mér líka.