This entry was posted
on Tuesday, May 9th, 2006 at 9:38 am and is filed under Gaman.
You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed.
You can leave a response, or trackback from your own site.
Hver var þín afsökun fyrir því að vera að þvælast í strætó? Ég man bara eftir þremur löglegum afsökunum fyrir bíleigendur:
a) Bílinn þinn er bilaður/ónothæfur.
b) Þú ert óhæfur til að stjórna bílnum (sennilega fullur).
c) Þú ert í hjólaátaki, hjólaðir of langt og gafst upp (eða hjólið gafst upp).
Heyrðu jú og ein enn, sérstaklega fyrir þig …
ö) Þú týndir bílnum.
Vestrænt dekurbarn getur þú verið. Það rann einfaldlega upp fyrir mér að einkabílsóráðsían okkar vesturlandabúa er ekki sjálfbær og fellur óhjákvæmilega um sjálfa sig fyrr eða síðar. Því síðar sem við venjum okkur af ósiðum okkar og agaleysi, því sárara verður fallið, og því harðari verður sú raun sem við leggjum á umhverfið í millitíðinni. Að endasendast um bæinn hver í sínum blikkdallinum er ábyrgðarlaus hégómi og virðingarleysi fyrir náttúrunni og framtíð barnanna okkar og barnabarna. Helst hefði ég átt að ganga, en það er bara skolli langt á milli Ártúnshöfða og miðbæjar svo að ég tók strætó til að fara bil beggja; þar samnýtti ég þó jarðefnaeldsneytið með tveimur öðrum eins og myndin sýnir. Það er skömminni skárra og a.m.k. ágætt sem fyrsta skref í átt að heilbrigðara gildismati og skynsamari neysluvenjum.
Það var önnur ástæðan. Hin var að fimmtánlítraáhundraðið-bensínbyttan mín átti inni dekurdag í heilsulindinni Brimborg. Sko, skoðun og smurningu og olíuskipti og það.
May 9th, 2006 at 7:44 pm

HS :-)
May 10th, 2006 at 12:11 am

May 10th, 2006 at 12:41 am
Og heyrðu nú … „sennilega fullur?“ Bestu þakkir! Hrmf!