Laugardalshöll

Grumpy fiskur

Umsjónarmaðurinn var eins og snúið roð í hund.

Ráðstefnustaðurinn í Laugardalshöll er ágætlega flottur. Hér er tvennt sem hann getur lagað.

Í fyrsta lagi er þráðlausa netið læst; þegar reynt er að nota það kemur upp vefsíða með þessum afarvalkostum:

  • Customers of Síminn internet services can choose the Subscription tab to connect
  • Customers of Síminn mobile services and foreign mobile operators can choose Mobile to connect
  • If you have purchased a prepaid card please choose Prepaid to connect

Og hvað eiga kúnnar OgVodafone að gera, sem ekki hafa neitt „prepaid card?“ Þeir mega líklega bara senda netpakkana sína þangað sem sólin ekki skín.

Sérhvert pínulítið tuttugu manna kaffihús í bænum býður upp á þráðlaust net ókeypis fyrir þá sem eru til í að spreða klinki í kaffi eða te. En ráðstefnuhöll þarf að rukka fyrir það OG samt bjóða aðeins helmingnum af gestum sínum (sem borga tugi þúsunda á haus) upp á að kaupa aðgang að því?

Hið síðara er að setja einn umsjónarmanninn á sjálfstyrkingarnámskeið og í framkomuþjálfun. Hljóðkerfið bilaði í miðjum fyrirlestri og öskraði sálarsvíðandi suði ofan í okkur, og þetta tók nokkrar mínútur að laga. Það er ekkert stórmál, en einhverjir ráðstefnuforkólfar hafa greinilega dirfst að lýsa óánægju með þetta; ég heyrði ekki orð þeirra, en allur salurinn fékk að heyra svar umsjónarmannsins, sem var eitthvað á þessa leið:

„Heyrðu, þetta er bara bilun. Það er nú bara svoleiðis. Þetta lagast ekkert bara svona [smellir fingrum.] Það væri nú gott ef þið löguðuð einhvern tímann tölvuna manns svona hratt. Ha?“

Allt í lagi að vera pirraður þegar illa gengur. Og ég heyrði ekki ákúrurnar sem hann hafði fengið; kannski voru þær ósanngjarnar. En að baula pirringnum yfir alla 150 ráðstefnugestina — það er bara ekki pró.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 44 access attempts in the last 7 days.