Fjærgætni

Jörðin í Stabius-Werner-vörpun

Elska skaltu heiminn allan, nær og fjær.

Þetta kort er í Stabius-Werner-vörpun með Reykjavík í miðju. Vörpunin var fundin upp u.þ.b. árið 1500 og er ekki bara hjartalaga heldur sýnir bæði réttar fjarlægðir frá miðju og rétt flatarmál. Myndina bjó ég til með kortvörpunargræju Bottomleys.

Ég varð var við asnalega hegðun í sjálfum mér. Tel hana varla til tíðinda, en ég læt það nú ekki aftra mér bloggs. Kryfjum málið.

Ég las grein á Deiglunni og þótti hún voðaleg vitleysa. En mér fannst ég ekki almennilega geta skrifað um það opinberlega, hversu mikil vitleysa mér þætti þessi grein. Höfundurinn gæti orðið sár. Nei, í alvöru.

Ég er greinilega hind hins góða.

Hins vegar er mér miklu auðveldara að skrifa að þessi texti sé vitleysa:

Astrology is a wonderful mix of science, art and craft. The best part of it is that no matter how much one learns he can never embrace all its knowledge. This is what makes it a science. [...]

Af hverju er auðveldara að dissa þessa vitleysu? Þetta er að vísu miklu meiri vitleysa en Deiglugreinin — hreinlega spangólandi glórulaust bull — en það er ekki ástæðan. Eiginlega er það ástæða til að dissa hana ekki — það er of auðvelt, of ódýrt.

Ástæðan er að höfundur Deiglugreinarinnar stendur mér nær. Hann er íslenskur. Ég hef séð framan í hann (mynd með greininni). Ég gæti hitt hann og þá þurft að finna til sektarkenndar yfir að hafa kallað greinina hans vitleysu. Höfund stjörnuspekivitleysunnar hitti ég nær örugglega aldrei, hef ekki séð andlitsmynd, hef engin samskipti átt við hann, og finn því ekkert til í sálinni við það að tala illa um skrif hans.

Þetta er arfavond ástæða, bæði fyrir því að hlífa nærstöddum óhóflega og fyrir því að sýna fjarstöddum enga vægð.

Eins er auðveldara að setja út á þekkt fólk. Það stendur mér sjálfkrafa fjær fyrir það að vera frægt, og að auki er það vant að fá skammir yfir sig alla daga. Það er varla auðsært. Mér þótti til dæmis ekkert erfitt að atast eitthvað í Össuri Skarphéðinssyni í fyrra. En svo rakst ég á hann á gangi í miðbænum daginn eftir — hann stóð mér allt í einu nær, svona bókstaflega — og ég fékk samstundis fyrir hjartað yfir að hafa farið svona með vesalings manninn. Á bloggsíðu með kannski svona tíu lesendur, sem allir taka hóflegt mark á mér.

Hjartveiki, kynni Bjartur að kalla þetta. En verra er þá að hjartað skuli harðna svona með fjarlægð.

Þetta er angi af stærri meiði. Því sem stendur okkur fjær er auðveldara að reiðast, eða gera gys að, eða sýna vanvirðingu eða skeytingarleysi. Þar með er að vísu auðveldara að segja satt frá skoðunum sínum á því … en um leið auðveldara að meiða óþarflega.

Okkur er innrætt, og sennilega líka eiginlegt, að skeyta mest um það sem stendur okkur næst — fjölskyldu okkar, þjóð okkar. Að elska eigið fólk og eigin þjóð þykir ekki bara fallegt — heldur fallegra en að elska annað fólk og aðrar þjóðir. „The love of one’s country is a splendid thing. But why should love stop at the border?“ spurði Pablo Casals. Vel spurt. Fáir samþykkja að föðurlandsást sé eitthvað ljótt. Hún þýðir þó beinlínis það að skeyta minna um aðrar þjóðir en þá sem ég álpaðist til að fæðast inn í. Elska skaltu náungann … meir en fráungann.

Hið sama gildir um samvisku og samkennd og meðlíðan; þær segja sérstaklega til sín um það sem stendur okkur næst, og þá hlýtur að leiða af sjálfu sér að þær segja síður til sín um það sem stendur okkur fjær.

Það slítur úr okkur hjartað að sjá fátækt og vannært munaðarlaust barn — eymdin stendur okkur nærri svona rétt á meðan við slysumst til að sjá hana. En aðra daga brosum við kát með ekkert aumt fyrir augunum, þótt okkur sé fullljóst (en ekki ofarlega í huga) að öllum stundum gráta milljónir munaðarlausra barna fátækt sína og vannæringu jafnsárt. Hjartað er með athyglisbrest — kannski sem betur fer, því að annars liti saklaust velviljað fólk aldrei glaðan dag.

Nærgætni er ágæt og virðingarverð. En það sakar ekki að gæta líka stundum þeirra sem fjær eru.

4 Responses to “Fjærgætni”

  1. Hjalti Says:

    nú stend ég nokkuð nærri þér, og ég á ekkert erfitt með að hneykslast á nýstofnuðu léni, sem virðist þjóna þeim eina tilgangi að endurtaka fyrri vitleysu:

    http://fugato.net/2005/05/15/islandi-allt/

    … jú reyndar ég á erfitt með það – ég biðst afsökunar, dreg allt til baka. Þetta var bara grín. Nýtt lén er frábært!

    p.s. fyrri þráðurinn “íslandi allt” var líka frábær.

  2. Gunnar Says:

    Það sem kemur mér á óvart er að þú hafir enn lyst á að nefna stjörnuspeki í blogginu þínu. Og ég að gera athugasemd við það.
    :-)

  3. Katrin fraenka thin Says:

    Gunnlaugur Thor Briem!!! Haettu nu thessari vitleysu! Thu ert bara ad flagga throngsyni og fafraedi thinni!! Og her med hef eg officially stigid ut ur skapnum sem 11. lesandinn thinn.
    …annars bara knus pjus og vona ad allt se gott ad fretta af ther!

  4. GÞB Says:

    Hvaða hvaða. Ég var vitanlega ekki að lasta stjörnuspeki, það eðla fag, onei, skárra væri það nú. Fjarri mér. Ég var bara að setja út á þennan texta sem ég vitnaði í.

    - að kalla stjörnuspeki „a wonderful mix of science, art and craft.“ Það er eins og að kalla Bláu nunnuna (erótískt tímarit gefið út á Íslandi fyrir einhverjum áratugum) yndislega blöndu af trúrækni, myndlist og sagnaritun. Vissulega voru sögur og myndir í tímaritinu, og það hét eftir afar trúræknum konum. Og má vera að höfundar efnis hafi talið sig trúrækna. En þeir sem þekkja trú vita að sú iðkun sem var lýst í blaðinu var ekki trúariðkun. Haltu samt ekki að ég sé að setja út á Bláu nunnuna, onei — hún er ekki síður virðingarverð en stjörnuspekin!

    - „[...] he can never embrace all its knowledge. This is what makes it a science.“ Reglugerðasafn Evrópusambandsins um landbúnaðarafurðir er þá líka vísindi skv. sömu skilgreiningu. Enginn mennskur maður kemst yfir þann fjára. Síðan hvenær skilgreinast vísindi af því að það sé ekki hægt að læra þau?

    Eitt er að veita stjörnuspekinni allan þann heiður sem hún á skilinn. En að kalla hana vísindi … það samþykki ég ekki einu sinni í háði. : )

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.